Í prjónahópur Ljóssins er að taka þátt í fallegu samfélagsverkefni og prjóna lítil hjörtu.
Hugmyndin með hjörtunum er að foreldrar fái hjarta þegar kemur í ljós að barnið þeirra er með meðfæddan hjartagalla.
Foreldarnir geta verið með hjörtun inná sér þegar þau eru með börnunum sínum á spítalanum og þegar þau þurfa að fara geta þau skilið hjörtun eftir í vöggunni hjá barninu. Hjörtun eru þá með lykt foreldanna og veita barninu öryggi þegar foreldrarnir þurfa að fara.
Prjónahópur Ljóssins hittist á miðvikudögum kl. 9:00-12:00. Öll velkomin að mæta og prófa!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






