Fjölskylduganga Ljóssins 28. maí

Það styttist í árlegu fjölskyldugöngu Ljóssins, sem fer fram fimmtudaginn 28. maí. Í ár ætlum við að nýta tækifærið og kynnast betur fallega umhverfinu við nýja heimili Ljóssins í Grafarvogi.

Gangan hefst kl. 13:30 frá Gylfaflöt 5 með léttum upphitunarteygjum áður en við leggjum af stað, hver á sínum hraða. Starfsfólk Ljóssins verður á staðnum til aðstoðar ef þörf er á. Þau sem ekki treysta sér í gönguna eru samt hjartanlega velkomin að mæta og kíkja í Gylfaflöt.

Við hvetjum alla þjónustuþega til að mæta með fjölskyldu og vini. Muna að klæða sig eftir veðri, taka með sér vatnsbrúsa og göngustafi ef þörf er á.

Skráning er nauðsynleg upp á að vita mætingu:

Skrá hér

Athugið: Ljósið verður opið þennan dag en ekki íþróttasalurinn þar sem þjálfararnir verða að viðra okkur í göngunni. 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.