Hjartans þakkir fyrir frábærar móttökur á viðburðinum okkar síðasta þriðjudag!
Það var yndislegt að sjá hversu margir mættu og vildu styðja við starfsemi Ljóssins. Á viðburðinum frumsýndum við okkar eigið Ljósa charm sem hannað var í samstarfi við skartgripahönnuðinn Hlín Reykdal og einnig var auglýsingaherferð verkefnisins frumsýnd. Við gætum ekki verið stoltari af útkomunni!
Með þessari herferð erum við að safna fyrir tækjum í nýja líkamsræktarsal Ljóssins í Gylfaflöt 5 og skiptir stuðningurinn ykkar ótrúlega miklu máli.
Við viljum nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa keypt skart sem skiptir máli og sýnt verkefninu stuðning og hlýhug. Það er dýrmætt að finna hvað margir standa með okkur.
Hægt er að skoða skartið Ljósið x Hlín Reykdal hér.
Hér að neðan eru nokkrar skemmtilegar myndir frá deginum.


Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






