Í vikunni fór Ljósið í heimsókn í Snælandsskóla þar sem nemendur héldu góðgerðardag til styrktar góðu málefni. Eftir kosningu meðal nemenda var ákveðið að allur ágóði dagsins myndi renna óskiptur til Ljóssins.
Nemendur skólans stóðu sig frábærlega í söfnuninni og alls söfnuðust 493.823 krónur.

Suheel Mahad Omar, nemandi í 10. bekk, sem afhenti styrkinn fyrir hönd nemenda til Ernu Magnúsdóttur, framkvæmdastýru Ljóssins.
Við viljum innilega þakka nemendum og starfsfólki Snælandsskóla fyrir stuðninginn, hlýhuginn og þetta fallega framtak.


Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






