Dagana 15.-17. apríl verður skerðing á stundatöflunni í líkamlegu endurhæfingunni, þar sem þjálfarar Ljóssins verða á Krabbameinsráðstefnu í Dublin.
Mikilvægt er að meðferðaraðilar fylgist með nýjustu þróun og fræðslu í faginu svo við getum haldið áfram að bjóða upp á bestu mögulegu endurhæfinguna og stuðninginn fyrir þjónustuþega Ljóssins.
Hefðbundin stundaskrá í líkamlegu endurhæfingunni fellur niður – en á meðan okkar bestu þjálfarar fylla hausinn af nýjum fróðleik höfum við fengið til okkar gott fólk til að halda uppi vinsælustu tímunum.
Hægt verður að bóka sig í eftirfarandi tíma í líkamlegu endurhæfingunni dagana 15. -17. apríl:
Miðvikudagur 15. apríl
- Tækjasalur kl. 9:00
- Tækjasalur kl. 10:00
- Tækjasalur kl. 11:00
- Jóga kl. 10:00
- Slökun kl. 11:00
Fimmtudagur 16. apríl
- Tækjasalur kl. 9:00
- Tækjasalur kl. 10:00
- Tækjasalur kl. 11:00
- Gönguþjálfun kl. 11:00
- Stoðfimi kl. 13:00
Föstudagur 17. apríl
- Tækjasalur kl. 9:00
- Tækjasalur kl. 10:00
- Tækjasalur kl. 11:00
- Jóga kl. 10:00
- Slökun kl. 11:00
Önnur dagskrá í Ljósinu helst óbreytt.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






