Nú styttist í Ljósafossinn, sem fer fram laugardaginn næsta, 15. nóvember. Í ár verður Ljósafossinn enn glæsilegri en áður. Á svæðinu verður hinn vinsæli Möndluvagn með ilmandi möndlur og heitt kakó til sölu, þar sem 30-40% af verðinu rennur beint til Ljóssins. Ljósið verður einnig með falleg kerti til sölu, skreytt broti úr ljóði eftir Siggu Soffíu. Kertin kosta 4.500 krónur og allur ágóði rennur til Ljóssins.
Veðurspáin á laugardaginn er fullkomin fyrir göngu. Þetta er því tilvalið tækifæri til að fá sér ferskt loft, hreyfingu og styðja gott málefni. Taktu fjölskylduna, börnin og vinina með, það eru allir velkomnir.
Við hittumst á bílastæðinu við Esjuna kl. 15:30. Áður en gengið verður af stað upp að Steini kl. 16:00 mun Fjalla-Steini leiða hópsöng á einu lagi. Á leiðinni niður göngum við í þögn til að minnast þeirra sem við höfum misst í baráttunni við krabbamein og þeirra sem standa í þeirri baráttu núna.
Sjóvá styrkir Ljósið um 2.000 krónur fyrir hvern sem mætir við Esjurætur, svo við hvetjum alla til að mæta, hvort sem þú ætlar að ganga eða bara hvetja göngugarpana áfram frá Esjurótum.
Komdu með okkur og lýstu upp Esjuna fyrir gott málefni! Við hlökkum til að sjá sem flesta og mynda saman fallegan Ljósafoss.
Aðgangur er ókeypis.



Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






