Iðjuþjálfun í verki – Opið hús

Í tilefni af Alþjóðlegum degi iðjuþjálfunar, mánudaginn 27. október verður opið hús í Ljósinu milli 15:00-17:00.

Iðjuþjálfar Ljóssins munu meðal annars kynna jafnvægi á milli vinnu, tómstunda og hvíldar í daglegur lífi. Ráðleggingar varðandi rétta líkamsbeitingu, skipulagningu, orkusparandi aðferðir, hlutverk aðstandenda í veikindum og ýmis konar handverk.

Við hvetjum alla til að kíkja í heimsókn til okkar í Ljósið þennan dag -hvort sem þú ert í þjónustu hjá Ljósinu, aðstandandi eða bara áhugasamur um endurhæfingu krabbameinsgreinda. Komdu og fáðu innsýn í starf iðjuþjálfa og reyna ólík bjargráð á eigin skinni.

Léttar veitingar í boði og aðgangur ókeypis – Við hlökkum til að sjá sem flest þennan dag!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.