Fræðslunámskeið fyrir konur 16-45 ára hefst 28. október

Fræðslunámskeið fyrir konur 16-45 ára, sem eru að greinast í fyrsta skipti og/eða greindust á sl. ári hefst 28. október í Ljósinu.

Markmiðið með námskeiðinu er að konur í svipuðum sporum fái fræðslu og umræður og þannig stuðning til að takast á við breytt lífsskilyrði í kjölfar veikinda. Þeir fagaðilar sem koma að námskeiðinu hafa allir unnið með krabbameinsgreindum.
Umsjón með námskeiðinu hafa iðjuþjálfar í Ljósinu, en auk þeirra koma aðrir fagaðilar með fræðslu á sínu sérsviði.

Námskeiðið fer fram á fimmtudögum milli kl 10-12

• Tími 1 – Kynning á námskeiðinu – aðstæður og úrlausnir – Kolbrún Halla, iðjuþjálfi
• Tími 2 – Samskipti, tilfinningar og kynlíf – Áslaug Kristjánsdóttir, kynfræðingur
• Tími 3 – Mikilvægi þess að byggja upp orku og þrek – Inga Rán, sjúkraþjálfari og Mark, íþróttafræðingur
• Tími 4 – Tilfinningaviðbrögð og aukin vellíðan – Elín Kristín Klar, sálfræðiráðgjafi
• Tími 5 – Hvaða áhrif hefur greining og meðferð – Hrefna Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðingur
• Tími 6 – Að skapa áhugaverða framtíðarsýn – Matti Ósvald, markþjálfi og heilsufræðingur

Skráning fer fram í móttöku Ljóssins í síma 561-3770 eða með því að senda póst á mottaka@ljosid.is

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.