Kæru vinir,
Það er með mikilli gleði sem við segjum ykkur frá því að heilbrigðisráðherra hefur falið Sjúkratryggingum Íslands að gera þjónustusamning við Ljósið um endurhæfingarþjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein. Fjármögnun Ljóssins hefur hingað til byggst á styrkframlagi frá Vinnumálastofnun og heilbrigðisráðuneytinu til eins árs í senn og söfnunarfé, en með þessu breytta flæði fjármagns frá ríkinu munum við geta snúið okkur enn betur að innra starfi Ljóssins og að efla endurhæfingu krabbameinsgreindra.
Umfram allt er þetta staðfesting á því að starfssemi Ljóssins veiti einstaklingum sem greinast með krabbamein fyrirmyndarþjónustu sem skilar árangri.
„Árlega sækja á annað þúsund einstaklinga sér þjónustu hjá Ljósinu. Því er mikið í húfi að tryggja rekstrargrundvöll þessarar mikilvægu þjónustu þannig að notendur og starfsfólk búi við það lágmarksöryggi sem verður að vera fyrir hendi í svona starfsemi,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í fréttatilkynningu sem var send fjölmiðlum í morgun.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.