Miðvikudaginn 23. maí n.k. verður boðið upp á tveggja tíma námskeið í Ljósinu og ber námskeiðið yfirskriftina ,,Virkjaðu orkuna til lífsgæða og árangurs“. Á námskeiðinu verður leitast við að kenna þátttakendum að nota dagbók til að hjálpa við forgangsröðun og minnka þannig líkur á að álag og stress taki völdin. Markmiðið er að hámarka líkur á að hver dagur verði til aukinnar hamingju og árangurs. Frábært veganesti inni í sumarið.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Ragnheiður Agnarsdóttir stofnandi Heilsufélagsins. Ragnheiður hefur brennandi áhuga á hinum gullna meðalveg árangurs, lífsgæða, heilsu og hamingju.
Skráning er hafin á námskeiðið sem er þátttakendum að kostnaðarlausu. Hægt er að skrá sig með því að smella hér og senda okkur tölvupóst eða með því að hringja í síma 561-3770
Umsögn þátttakanda
,, Mjög skýr og góð framsetning á efni og þægilegt að hlusta á fyrirlesara. Bókin er mjög sniðug og gerir verkefnið enn áþreifanlegra og meira spennandi „
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.