Viltu læra að skera í tré.
Nýtt námskeið hefst núna á fimmtudaginn 30 maí kl 13:00- 15:30. Verður í 4 vikur. Hentar bæði konum og körlum.
Við höfum fengið til liðs við okkur tréútskurðarmanninn Friðgeir Guðmundsson. Hann hefur 30 ára reynslu í að skera í tré og hefur kennt m.a í handverkshúsinu.
Ef þið hafið áhuga þá væri gott að skrá sig hjá okkur í Ljósinu í síma 5613770 sem fyrst. Þið sem hafið verið að tálga og viljið halda því áfram eruð að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir líka.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.