Nú hefur Ljósið ýtt úr vör nýju kynningarverkefni með yfirskriftina: Skart sem skiptir máli

Verkefnið fór formlega í loftið nú fyrr í dag með útgáfuhófi og afhjúpun á skartinu sem fór fram í höfuðstöðvum Landsbankans með pompi og prakt! Á opnunarviðburðinum gafst gestum kostur á að heyra hvernig þetta fallega verkefni kom til, festa kaup á skartgripum og styrkja um leið gott málefni sem kemur okkur öllum við.

 

Ljósið stendur nú fyrir sérstakri fjáröflun í tengslum við flutning Ljóssins í nýtt og stærra húsnæði við Gylfaflöt í Grafarvogi. Safnað er fyrir tækjum í nýjan líkamsræktarsal en í tilefni þess hefur skartgripahönnuðurinn Hlín Reykdal hannað sérstakt LjósaCharm -þar sem allur ágóði rennur óskiptur til starfsemi Ljóssins.

Með herferðinni er þjóðin hvött til að hópast í kringum Ljósið og tryggja að endurhæfingarstarfið geti áfram tekið á móti þeim sem greinast með krabbamein, án kostnaðar eða biðlista.

Í hverjum mánuði sækja tæplega 600 manns þjónustu og fræðslu í Ljósið en markmiðið hefur verið frá upphafi að bjóða upp á þjónustu að kostnaðarlausu. Til að Ljósið geti haldið úti endurgjaldslausri heilbrigðisþjónustu, er lagt traust á velvild einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi. Ljósið er eina endurhæfingarmiðstöðin sem sérhæfir sig fyrir fólk sem greinist með krabbamein en auk þess er aðstandendum veittur stuðningur og fræðsla. Það er því bersýnilegt að ansi margir munu á sinni vegferð nýta sér þjónustu Ljóssins.

Ljósið vill einnig nota tækifærið og þakka dásamlegum samstarfsaðilum fyrir þeirra óeigingjarna framlag. Án ykkar hefði þetta ekki verið hægt.

 

Ljósið hvetur ykkur öll til að kaupa einstakt skart sem virkilega skiptir máli og styður um leið það mikilvæga starf sem fer fram í Ljósinu. Þannig getur Ljósið náð markmiðum sínum um að taka á móti öllum Íslendingum sem greinast með krabbamein.

Smelltu hér fyrir neðan til að skoða skartið 

Skart sem skiptir máli – Ljósið x Hlín Reykdal

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.