Ljósið x Hlín Reykdal – Nýtt samstarfsverkefni

Ljósið og Hlín Reykdal skartgripahönnuður kynna fallegt samstarfsverkefni.

Með sannri ánægju kynnum við stolt nýtt fjáröflunarverkefni: Ljósið x Hlín Reykdal.

Hlín er með sína eigin skartgripalínu: Charms by Hlín Reykdal og nú hefur hún hannað sérstakt „charm“ fyrir Ljósið sem við hefjum brátt sölu á, ásamt armböndum og hálsmenum.

Þegar við leituðum upphaflega til Hlínar með þessa hugmynd bar það einmitt upp á afmælisdegi pabba hennar en hún missti pabba sinn, Jón Reykdal listmálara, úr krabbameini. Henni fannst því skrifað í skýin að vinna með Ljósinu og er að gefa alla sína vinnu. Allur ágóði af sölu skartsins rennur því til Ljóssins.

 

Ljósaloginn sem „charm

Merki (logo) Ljóssins var hannað af Önnu Þóru Árnadóttur hjá auglýsingastofunni ENNEMM.

Hinn heiti, rauði litur merkisins táknar hlýju og styrk. Form merkisins er þríþætt: Innsti hlutinn er logandi ljós, tákn fyrir lífið sjálft. Hvíti hluti merkisins er mannsmynd sem umfaðmar ljósið. Loks myndar ysti hlutinn skjól utan um ljósið. Loginn er því lýsandi fyrir starfsemi Ljóssins sem er stundum lýst sem skjóli í stormi krabbameins. Í þessu verkefni fær loginn svo sannarlega að skína skært þar sem Hlín Reykdal teiknaði hann upp og saman umbreyttum við honum í fallegt „charm“ sem fólk getur borið með sér.

 

Allur ágóði rennur til Ljóssins og styður við uppbyggingu á nýjum íþróttasal

Nú þegar það er orðið ljóst að Ljósið flytur í stærra húsnæði á næstu mánuðum söfnum við fyrir nýjum tækjum og aðbúnaði í endurhæfingarstarfið. Ágóðinn af sölu skartsins mun meðal annars nýtast í tækjakaup fyrir íþróttasalinn sem við erum að smíða og við hvetjum öll til að kaupa fyrir sig og sína fallegt hálsmen eða armband með Ljósa „charm“. Þannig er hægt að sýna stuðning bæði við starf Ljóssins og þeirra sem þekkja til krabbameins sem sjúkdóms.

 

Ljósið er til staðar fyrir þig og þína – Komdu og fagnaðu með okkur

 

Af þessu tilefni höldum við viðburð, þriðjudaginn 12.maí klukkan 17:00-18:30.

Fögnum saman þegar við ýtum af stað nýju fjáröflunarverkefni með pompi og prakt!

Við frumsýnum okkar eigið Ljósa „charm“, armbönd og hálsmen og gestum gefst kostur á að heyra hvernig þetta fallega verkefni kom til, festa kaup á skartgripum og styrkja um leið gott málefni sem kemur okkur öllum við. Við bjóðum upp á drykki, nærandi samveru, ljúfa tóna og tækifærið til að vera með þeim fyrstu til þess að sjá og kaupa fallega Ljósa „charm-ið“.

Við verðum í glæsilegum höfðuðstöðvum Landsbanka Íslands, Reykjastræti 6. Erna Magnúsdóttir, framvkæmdarstýra Ljóssins og Hlín Reykdal, hönnuður munu segja nokkur vel valin orð um þetta fallega verkefni.

Nauðsynlegt er að skrá sig á viðburðinn þar sem takmarkaður fjöldi kemst að, hægt er að skrá sig hér.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.