Við bjóðum þjónustuþega Ljóssins og aðstandendum þeirra hjartanlega velkomna á fyrirlestraröðina Samtalið heim.
Næsta mánudag, 23. febrúar kl. 16:30-17:30, er Samtalið heim: Samskipti og fjölskylda, með Björgvini fjölskyldumeðferðarfræðingi.
Þegar einstaklingur greinist með krabbamein hefur það áhrif á alla fjölskyldumeðlimi og daglegt líf þeirra. Breytingar geta orðið á hlutverkum okkar innan fjölskyldunnar og almennri færni. Mikilvægasti þátturinn í breytingum er aðlögun. Aðlögunarferlið felur m.a. í sér að vera upplýstur, að fá og veita stuðning og eiga opin samskipti.
Fræðslan fer fram í húsnæði Ljóssins og verður einnig streymt í gegnum ZOOM. Frekari upplýsingar og skráning hér.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






