Hvernig hljómar orlofsvika í Bergheimum?

Bergmál líknarfélag býður þjónustuþegum Ljóssins að njóta, hvílast, vera með skemmtilegu fólki, fara í gönguferðir eða bara hlusta á fuglana á orlofsviku á Sólheimum (Bergheimahúsi) í Grímsnesi í sumar. Bergheimar er í eigu Bergmáls líknarfélags og á hverju sumri bjóða þau fólkinu okkar upp á ókeypis orlofsvikur þar ekkert er greitt fyrir gistingu og mat.

Um er að ræða 11-12 tveggja manna herbergi vikuna 29. maí til 2. júní næstkomandi og skráning er hafin í móttöku og í síma 561-3770.

 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.