Landsbyggðardeild Ljóssins: Endurhæfing um allt land

Frá árinu 2020 hefur Ljósið veitt fjarheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga með krabbamein sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Markmiðið er að veita aðgengi að sérhæfðri og einstaklingsmiðaðri endurhæfingu – sama hvar fólk býr.

Fjölmargir skjólstæðingar hafa nýtt sér þetta úrræði með góðum árangri og í dag býður Ljósið upp á:

  • Viðtöl við fagaðila á borð við iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, sálfræðinga, næringarfræðinga o.fl. í gegnum fjarfundabúnað
  • Sérhæfð námskeið og fræðslu fyrir einstaklinga með krabbamein og aðstandendur þeirra
  • Þjálfun og æfingar með streymi og myndböndum fyrir ólík stig endurhæfingar
  • Ráðgjöf og stuðning fyrir skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra
  • Aðstoð við að finna úrræði og stuðning í heimabyggð

Ljósið leggur áherslu á samstarf við fagaðila á landsbyggðinni til að styðja við og styrkja þjónustu í nærumhverfi fólks. Landsbyggðardeildin byggir á 20 ára reynslu Ljóssins og sérhæfðum úrræðum sem hafa þróast með þörfum skjólstæðinga í gegnum tíðina.

Hafðu samband
Ef þú ert heilbrigðisstarfsmaður á landsbyggðinni og vilt kynnast þjónustunni betur, eða deila upplýsingum um úrræði í þínu umhverfi – þá er velkomið að hafa samband við Louisu Sif Mønster á netfangið louisa@ljosid.is eða í síma 561 3770.

🫂 Varst þú að greinast með krabbamein og hefur hug á að hefja endurhæfingu? -> Smelltu hér
📖 Viltu vita meira um landsbyggðardeild Ljóssins? -> Smelltu hér

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.