Mánudaginn 28. apríl kl. 16:30–17:30 býður Guðrún Friðriksdóttir, iðjuþjálfi hjá Ljósinu, upp á fræðsluerindi um mikilvægi jafnvægis og endurhæfingar á sumrin.
Sumarið getur verið dásamlegt – en líka krefjandi. Breytt fjölskyldurútína, væntingar samfélagsins um að við „njótum í botn“ og lengri dagar geta haft áhrif á líðan og orku. Hvernig sinnum við andlegri og líkamlegri heilsu án þess að fara fram úr okkur – þegar allt í kringum okkur virðist í fríi?
Á þessum notalega og hagnýta fyrirlestir ræðir Guðrún um raunveruleikann á bak við sumarendurhæfingu – án eitraðrar jákvæðni og klisja. Hún kynnir leiðir til að skoða vanamynstur, bera kennsl á eigin gildi og skapa jafnvægi sem styður við bata og vellíðan, óháð árstíð.
📅 Mánudagurinn 28. apríl
🕟 Kl. 16:30–17:30
📍 Græni salurinn í Ljósinu – Einnig streymt í gegnum Zoom
🌞 Öll velkomin – með sól í hjarta eða ský á himni 💛
Erindið fer fram í græna salnum í Ljósinu að Langholtsvegi. Öll eru hjartanlega velkomin og fer skráning fram í síma 561-3770 og rafrænt með því að smella hér.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.