Af öllu hjarta þökkum við Kaupmönnum Íslands fyrir að færa Ljósinu gjöf sem yljar líkama og sál.
Á dögunum fengum við góða heimsókn frá fulltrúum Kaupmannasamtaka Íslands.
Með þeirra rausnarlega stuðningi höfum við sett upp glænýtt eldhús þar sem grænmetisréttir eru eldaðir frá grunni – með kærleika í hverri skeið. Við getum nú tekið á móti fleiri gestum í fallegum og björtum sólskála sem opnar fyrir nærandi samveru, hlýju og gleði.
Í sólskálanum okkar spretta nú líka ferskar kryddjurtir sem lyfta matnum okkar upp – rétt eins og gjöf þeirra hefur lyft öllu okkar starfi.

Á myndinni má sjá fulltrúa frá Kaupmannasamtökum Íslands, þá Ólaf Björnsson, Ásgeir Ásgeirsson, Sigurð Gunnarsson og Júlíus Þór Jónsson með Ernu Magnúsdóttur, framkvæmdarstýru Ljóssins ásamt Sigrúnu Vikar, starfsmanni Ljóssins.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.