POP UP: Yin Yoga og bandvefslosun með Erlu og Fríðu

Ljúf stund fyrir líkama og sál

Föstudaginn 14. mars verða Erla og Fríða, þjálfarar Ljóssins með einstaka pop-up tíma í Yin Yoga og bandvefslosun. Þetta er frábært tækifæri til að gefa líkamanum kærkomna mýkt, róa hugann og sleppa takinu á spennu og stirðleika.

📅 Dagsetning: 14. mars
Tímar: kl. 9:00 og 10:30 (70 mínútur hvor)
📍 Staðsetning: Græni salurinn í Ljósinu

Hvað er Yin Yoga og bandvefslosun?
Yin Yoga eru rólegar og djúpar teygjuæfingar þar sem hverri stöðu er haldið í lengri tíma en í hefðbundnu jóga. Með því að dvelja lengur í teygjunum nær bandvefurinn að slaka á og liðleiki eykst. Bandvefslosun felur í sér sjálfsnudd með nuddboltum, sem hjálpar til við að losa um spennu í vöðvum og mýkja bandvefinn.

Tíminn er fyrir alla – hvort sem þú ert byrjandi eða vanur, þá munu þessar 70 mínútur veita þér djúpa slökun og vellíðan. Við endum tímann á leiddri slökun fyrir líkama og sál.

💛 Yin Yoga og bandvefslosun eru frábærir valkostir fyrir þá sem vilja bæta hreyfigetu, draga úr verkjum og auka vellíðan í endurhæfingarferli. Þessar æfingar styðja við jafnvægi í taugakerfinu, bæta líkamsvitund og stuðla að djúpri endurnæringu.

🚨 Athugið: Hreyfiflæði og jóga fellur niður þennan föstudag vegna viðburðarins.

Gefðu þér tíma í smá dekur – við hlökkum til að sjá þig!

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.