Árleg fjölskylduganga Ljóssins fer fram miðvikudaginn 12. júní

Þá fer að líða að árlegri fjölskyldugöngu Ljóssins!

Í ár göngum við í kringum Hvaleyrarvatn og hittumst við bílastæðið vestan megin vatnsins, miðvikudaginn 12. júní. 

Gangan hefst klukkan 11:00 með upphitun og í kjölfarið göngum við af stað, hvert á sínum hraða. Hringurinn í kringum vatnið er um 2,2 kílómetrar og stígurinn tiltölulega greiðfær – þéttur malarstígur alla leiðina.
Starfsfólk Ljóssins mun að venju dreifa sér á gönguleiðina og vera til aðstoðar ef þörf er á. Þeir sem treysta sér ekki til að ganga eru eindregið hvattir til að mæta og njóta með okkur við vestari enda vatnsins.
Við hvetjum alla þjónustuþega og velgjörðarfólk Ljóssins til að mæta með sitt fólk með sér. Rétt er að minna á að klæða sig eftir veðri og gott er að hafa drykkjarvatn og göngustafina með.
Vinsamlegast athugið að Ljósið verður lokað þennan dag.
Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér og á Facebook síðu Ljóssins.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.