Eliza Reid forsetafrú hrinti af stað ljósavinaherferð fullri af þakklæti í Ljósinu í dag. Herferðin ber yfirskriftina „Þinn stuðningur er okkar endurhæfing“ og leggur áherslu á þakklætið sem þjónustuþegar Ljóssins finna til þeirra sem styðja Ljósið, svokallaða Ljósavini.
„Ljósavinir eru lykilþáttur í rekstri Ljóssins og við finnum fyrir svo ótrúlega miklu þakklæti til þeirra frá þeim einstaklingum og aðstandendum sem nýta sér þjónustu Ljóssins. Því fannst okkur kjörið að það yrði kjarninn í herferðinni.“ segir Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, kynningarstjóri Ljóssins.
Leikstjóri herferðarinnar er Ninna Pálmadóttir, en hún nam leikstjórn í NYU Tisch School of the Arts, og hlaut hún Edduna fyrir myndina Paperboy.
Aukinn fjöldi þjónustuþega kallar á aukinn fjárhagslegan stuðning
Ljósið er endurhæfingarmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda en einnig veitir Ljósið aðstandendum stuðning og fræðslu. Í maí 2021 sóttu tæplega 600 manns þjónustu í Ljósið.
„Sá fjöldi sem til okkar sækir endurhæfingu eykst með hverjum mánuðinum. Við erum sífellt að þróa þjónustuleiðir og –framboð og treystum í þeirri vinnu áfram á grasrótina í Ljósinu, Ljósavinina, sem stutt hafa dyggilega við bak okkar. Þeir hafa aldrei verið mikilvægari.“ segir Erna Magnúsdóttir, stofnandi Ljóssins.
Takk allir sem komu til okkar á Langholtsveginn í dag, allir sem tóku þátt á Facebook og auðvitað allir Ljósavinir fyrir ykkar framlag.
- Ninna Pálmadóttir segir frá verkefninu
- Lagt við hlustir
- Sigrún, Bogga, Guðrún og Steinunn voru hressar að vanda
- Yngsti þátttakandi verkefnisins, Emma Sól fangaði athygli allra
- Viktoría Jensdóttir ásamt góðri vinkonu
- Trausti, Einar, Gunnhildur og Sigrún
- Eliza og Erna
- Eliza Reid sagði nokkur vel valin orð
- Heiða Eiríksdóttir, Eliza Reid, Erna Magnúsdóttir og Sólveig Kolbrún Pálsdóttir
- Kolbrún Halla og Steinunn Ingimundardóttir
- Chanel Björk frá framleiðslufyrirtækinu Norður ásamt Ninnu Pálmadóttur leikstjóra herferðarinnar
- Erna Magnúsdóttir og Hulda Hjálmarsdóttir taka stöðuna
- Guðrún Áslaug Einarsdóttir og Anna Sigríður, iðjuþjálfar í Ljósinu voru glaðar í bragði
- Mark Bruun, Elinborg Hákonardóttir, Guðbjörg Dóra og Guðrún Erla
- Staðan tekin
- Framleiðendur ásamt Ástrós og Sindra frá HN markaðssamskiptum
- Heiða Eiríksdóttir og Sólveig Kolbrún Pálsdóttir
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.