Í síðustu viku komu forsvarsmenn Lionsklúbbsins Engeyjar til okkar í Ljósið í skemmtilega heimsókn. Erna Magnúsdóttir tók á móti hópnum og sýndi þeim húsakynnin og tók formlega á móti rausnarlegum styrk sem klúbburinn hafði safnað.
Styrkurinn mun fara í barnastarf Ljóssins.
Við þökkum Sigríði Vigfúsdóttur formanni, Jónu Guðjónsdóttur gjaldkera og Sigríði Einarsdóttur formanni líknarnefndar fyrir komuna og sendum öllum konum í Lionsklúbbnum Engey okkar bestu þakkir.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.