Fyrirlestur í Ljósinu
Fimmtudaginn 8.okt kl. 11:00
Ath, Suðurlandsbraut 4, sjöunda hæð
Núvitund (mindfulness) er náttúrulegur eiginleiki hugans til að vera meðvitaður hér og nú um það sem er að gerast, á meðan það gerist án þess að dæma það á nokkurn hátt. Hægt er að þjálfa sig á kerfisbundin hátt í því að vera meira hér og nú.
Rannsóknir sýna í vaxandi mæli að núvitund (mindfulness) ýtir undir andlega og líkamlega vellíðan og auðveldar okkur að takast á við ákoranir og verkefni í lífinu. Þessi nálgun hefur verið notuð á áratugi í löndum í kringum okkur með góðum árangri.
Gunnar L Friðriksson hefur farið á námskeið í núvitundarhugleiðslu bæði hér heima og erlendis í tíbetsku klaustri staðsettu í Skotlandi. Hann hefur einnig lokið leiðbeinendanámskeiði frá Mindfulness Association. Undanfarin ár hefur hann stundað kennslu hjá Hugleiðslu- og friðarmiðstöðinni og einnig á vegum Hjúkrunarfélags Íslands. Er nú starfandi sem heilsunuddari og sjúkraliði auk þess að sinna kennslu fyrir sjúkraliða.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.
You must be logged in to post a comment.