Ný barnanámskeið að hefjast

krakkarnir.jpg
 Námskeið fyrir aldurinn 6-9 ára og 10-13 ára hefst 11. febrúar   
Námskeið fyrir 14 -16 ára  – Auglýst síðar
Námskeiðið er fyrir  börn og einnig unglinga sem eiga það sameiginlegt að vera aðstandendur. Börnin fá tækifæri að upplifa, skapa og tjá sig í gegnum leik og verkefni í öruggu og styðjandi umhverfi. Lögð er áhersla á að mæta þörfum hópsins og hvers og eins innan hans. Hópunum er aldursskipt.

Námskeiðið er styrkt af velferðasjóði barna. 

Skráning og nánari upplýsingar í  síma 5613770
Lengd: 10 vikur, einu sinni í viku, 1 og ½ klst. í senn. Frá kl: 16.30 – 18.00
Umsjón með námskeiðinu eru: Elísabet Lorange, listmeðferðarfræðingur, Helga Jóna Sigurðardóttir, iðjuþjálfi og Rósa Gunnsteinsdóttir, iðjuþjálfi

1.-3. Tími  TRAUST

  •  Sjálfstraust
  •  Hugrekki
  •  Treysta öðrum
  •  Treysta aðstæðum

 4-6. tími  TENGSL

  •  Félagslegur og tilfinningalegur lærdómur
  •  Samskipti
  •  Samvinna
  •  Tjáning
  •  Samkennd

7-9. tími  SJÁLFSÞEKKING

  •  Aukin meðvitund varðandi færni, líðan og samskipti
  •  Yfirfærsla á daglegt líf
  •  Jákvæð reynsla

Í 10. tíma (síðasta tímanum) koma foreldar og systkini með og er ætlunin að allir hafa gaman saman

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.