Fundirnir verða einu sinni í viku á miðvikudögum kl. 17:30 í 8 vikur, og hefjast 16 sept. Fræðslufundirnir hafa verið á dagskrá einu sinni áður og gáfust vel.
Markmiðið er að karlmenn fái uppbyggjandi fræðslu, og hafi gagn og gaman af að hitta aðra í sömu aðstæðum.
Farið verður í gegnum það breytingarferli sem einstklingar ganga í gegnum við það að veikjast. Það verða fyrirlestrar um mikilvægi þess að byggja sig upp andlega og líkamlega og mikilvægi þess að setja sér markmið . Fundarstjóri er eins og á fyrra námskeiðinu, Matti Ósvald heilsufræðingur. Þeir fagaðilar sem hafa verið áður verða með nýja fyrirlestra eða nýjar áherslur. Einnig eru nýjir fyrirlesarar. Þeir sem verða með framsögu eru:Helgi Sigurðsson, krabbameinssérfræðingur og prófessor, Högni Óskarsson geðlæknir og markþjálfi, Daníel Reynisson formaður Krafts (félag ungra krabbameinsgreindra), Stefán Hafþór Stefánsson sjúkraþjálfari og Haukur Guðmundsson sjúkraþjálfari og jógakennari. Þá verður slegið á létta strengi og eldað með Ingvari á Salatbarnum.
Kaffi og létt meðlæti.
8 vikna fræðslunámskeið kostar kr. 5000,-. (Ljósið reynir að halda öllum kostnaði á Ljósbera í lágmarki, og ef einhver á erfitt með að greiða gjaldið vegna persónulegra aðstæðna þá tökum við tillit til þess).
Samhliða fræðslufundunum gefst þér kostur á að skrá sig á 8 vikna jóganámskeið fyrir karlmenn. Það hefst mánudaginn 21 sept kl. 17:30 ef næg þátttaka fæst.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.