Aðstandendakvöld í streymi fyrir fullorðna aðstandendur

Krabbameinsgreining hefur áhrif á alla sem sem tengjast þeim sem greinast og oft á tíðum er sagt að krabbamein sé fjölskyldusjúkdómur. Greining og meðferð getur haft áhrif á alla þætti dagslegs lífs svo sem hlutverk og stöðu einstaklinga innan fjölskyldu og í persónulegum samskiptum fjölskyldumeðlima við hvert annað sem og við aðila utan nánustu fjölskyldu. Aðstandendakvöld í streymi eru hugsuð fyrir alla aðstandendur sem eru að styðja ástvin sinn í gegnum krabbameinsgreiningu og meðferð, sama hvar í ferlinu ástvinur þeirra er staddur. Það skiptir máli að huga vel að eigin heilsu, andlega og líkamlega, á þessu tímabili þar sem aðstandendur geta ekki verið stuðningur fyrir aðra ef þeim tekst ekki að standa með sér.

Það hefur verið reynsla aðstandenda sem hafa þegið stuðning frá jafningjum í Ljósinu að það hafi hjálpað að spegla sig í öðrum, með því að tala eða hlusta eða blanda beggja. Utanaðkomandi stuðningur og að upplifa samfélag, að man sé ekki að takast á við þessa reynslu í einangrun, einrúmi og afskiptaleysi hefur mikið að segja um hvernig fólk tekst að takast á við þetta tímabil. Að æfa sig í að setja orð á tilfinningar, bera kennsl á eigin líðan, að setja mörk og sjálfsmildi er allt mikilvægt og hjálpar fólki að líða betur eða umbera líðan sína. Skilningur á eigin líðan og aðstæðum minnkar ótta sem og að ræða það upphátt sem liggur á hjarta.

 

EFNISTÖK

Fimmtudagur 15. maí –  Að vera aðstandandi í endurhæfingarferlinu
Fimmtudagur 5. júní – Þrautseigja í aðstandendahlutverki
Mánudagur 14. júlí – Hlutverk og venjur í samskiptum
Mánudagur 11. ágúst – Sjálfsrækt sem aðstandandi

Næsta erindi

15. júní kl. 16:30-17:30

Þrautseigja í aðstandendahlutverki

Umsjón: Kristín Hulda, sálfræðingur og Guðrún Friðriks, iðjuþjálfi

Fer fram rafrænt í gegnum Zoom.

Skráning fer fram rafrænt hér að neðan og í móttöku Ljóssins.

Skráning á erindi 15. júní