Jafningjahópur | Konur 16-45 ára

Í Ljósinu er starfandi jafningjahópur fyrir konur á aldrinum 16-45 ára sem greinst hafa með krabbamein.

Hópurinn starfar undir leiðsögn fagfólks Ljóssins, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og markþjálfa en að auki er starfinu stýrt af fólki sem hafa sótt þjónustu í Ljósið.

Reynsla okkar sýnir fram á mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum svipaða lífsreynslu til að koma saman og deila upplifun sinni. Að hitta jafningja, sem hafa innsýn í líðan, hugsanir og þau líkamlegu einkenni sem eru fylgifiskar krabbameins, getur hjálpað til við að takast á við nýjan veruleika.

Markmið hópsins er að hafa gaman, en á sama tíma að auka úthald og þol í félagslegum aðstæðum, ögra þægindarammanum með nýjum áskorunum, deila reynslu sinni og miðla góðum ráðum, fá ráðgjöf og fræðslu fagaðila auk þess að kynnast skemmtilegu fólki.

Vekjum einnig athygli á lokuðum hópi á Facebook þar sem upplýsingar um næstu fundi og fleira skemmtilegt er að finna.

Helstu upplýsingar

Fyrir hverja: Konur, 16-45 ára, sem greinst hafa með krabbamein

Umsjón: Guðný Katrín, iðjuþjálfi og Hólmfríður, iðjuþjálfi

Hópurinn hittist í hádegisverði í Ljósinu alla mánudaga kl:12:00

Í kjölfarið er handverk í Ljósinu kl:12:30 – 15:30

Facebook

Þessi hópur er með samfélag á Facebook

Smelltu hér til að ganga í hópinn