Í Ljósinu er starfandi jafningjahópur fyrir karlmenn á aldrinum 16-45 ára sem greinst hafa með krabbamein.
Hópurinn starfar undir leiðsögn fagfólks Ljóssins, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara og markþjálfa en að auki er starfinu stýrt af mönnum sem hafa sótt þjónustu í Ljósið.
Reynsla okkar sýnir fram á mikilvægi þess að skapa vettvang fyrir fólk sem hefur gengið í gegnum svipaða lífsreynslu til að koma saman og deila upplifun sinni. Að hitta jafningja, sem hafa innsýn í líðan, hugsanir og þau líkamlegu einkenni sem eru fylgifiskar krabbameins, getur hjálpað til við að takast á við nýjan veruleika.
Markmið hópsins er að hafa gaman, en á sama tíma að auka úthald og þol í félagslegum aðstæðum, ögra þægindarammanum með nýjum áskorunum, deila reynslu sinni og miðla góðum ráðum, fá ráðgjöf og fræðslu fagaðila auk þess að kynnast skemmtilegu fólki.
Vekjum einnig athygli á lokuðum hópi á Facebook þar sem upplýsingar um næstu fundi og fleira skemmtilegt er að finna.
Helstu upplýsingar
Fyrir hverja: Karla, 16-45 ára, sem greinst hafa með krabbamein
Umsjón: Fagfólk Ljóssins
Hópurinn hittist í tækjasal Ljóssins þriðjudaga og fimmtudaga kl.11:00. Eftir ræktina borðar hópurinn saman, ýmist í húsi eða fer út í bæ og gerir sér glaðan dag.
Þessi hópur er með samfélag á Facebook