Hver er ég?

Markmið með námskeiðinu Hver er ég? er að styðja fólk í að aðlagast sjálfsmynd sinni í kjölfar meðferðar.

Umrótarbreytingin sem fylgir greiningu og meðferð hefur óumflýjanlega áhrif á einstaklinginn en sumir upplifa sjálfsmynd sína eftir meðferð algerlega ósamrýmanlega fyrri sjálfsmynd.

Námskeiðinu er ætlað að bera kennsl á ný gildi, önnur hlutverk og styðja fólk í að kynnast sér á nýjum forsendum. Í tímunum verða vilji, vani og vanamynstur skoðuð og þátttakendur hvattir til að skoða þessa þætti í eigin lífi.

Athugið að námskeiðið krefst virkrar þátttöku í tímum og gert er ráð fyrir að þátttakendur vinni heimaverkefni milli tímanna. Þá skiptir máli að þeir sem skrái sig á námskeiðið skuldbindi sig til að mæta í alla fjóra tímana.

 

UMRÆÐUEFNI NÁMSKEIÐSINS:

  • Trú á eigin getu og áhrifamátt
  • Vani og vanamynstur
  • Hlutverk og gildi

Næsta námskeið

Hefst 8.maí 2024
Miðvikudagar frá kl. 13:30 – 15:30
4 skipti

Umsjón: Helga Jóna, iðjuþjálfi og Hólmfríður, iðjuþjálfi

Námskeiðið er þátttakendum að endurgjaldslausu.
Skráning og  upplýsingar í síma 561-3770

Skráning á námskeið

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem eru komnir á seinnihlutann í sínu endurhæfingarferli og hentar því ekki þeim sem eru að hefja endurhæfingu. Ef þú ert í vafa, þá hvetjum við þig til að hafa samband við þinn fagaðila.