Litun klúta og skapandi flæði
Föstudaginn 24. apríl kl. 9:00-12:00.
Komið og verið með í skapandi flæði í litun klúta með Rebekku starfsnemi. Á örnámskeiðinu fær hver og einn klút úr silki til þess að teikna, mála og/eða skrifa á. Þátttakendur eiga svo sinn klút sem hægt er að nýta sem háls- eða höfuðklúta eða jafnvel til innrömmunar.
Rebekka Ashley Egilsdóttir, starfsnemi í Ljósinu, sér um námskeiðið.
Skráning í móttöku Ljóssins eða í síma 561-3770.
Frjáls útsaumur og slökun
Mánudaginn 27. apríl kl. 13:15-15:45
Viltu koma með í ferðalag þar sem við slökum á og hugsum bara um útsaumsspor, liti og form? Mikil slökun felst í að vinna við útsaum. Að geta kúplað sig út úr daglegu lífi og sökkt sér í handverk – það að skapa með hug og hönd – felur í sér mikla hugarró og slökun frá daglegu amstri.
Námskeiðið er fyrir þau sem vilja læra nýja nálgun í útsaum – slow stitching. Kennd verða ýmis útsaumsspor og unnin verkefni þar sem útkoman er ekki fyrirfram ákveðin og við leyfum sköpunarkraftinum að ráða för.
Gunnlaug Hannesdóttir textílkennari sér um námskeiðið.
Skráning í móttöku Ljóssins eða í síma 561-3770.
Helstu upplýsingar
Þriðjudaginn 24. apríl kl. 9:00-12:00
Umsjón: Rebekka Ashley Egilsdóttir, starfsnemi í Ljósinu

