Heklaðar tuskur horn í horn, pop-up smiðja þriðjudaginn 3. nóv kl. 12:30-15:30
Ef þig langar að læra einfalda leið til þess að hekla tusku er þetta einmitt smiðjan fyrir þig! Gott er að kunna aðeins að hekla en einnig eru byrjendur í hekli velkomnir.

Berglind Gunnarsdóttir sér um smiðjuna. Skráning í mótttöku Ljóssins, mottaka@ljosid.is eða í síma 561-3770.

 

Skapa og slaka á þriðjudögum (3., 10., 17. og 24. nóvember) í nóvember kl. 9:00-12:00
Thelma Björk Jónsdóttir, jóga- og hugleiðslukennari verður með námskeiðið slaka og skapa þar sem unnið verður út frá flæði og skynjun í gegnum handverk og hugleiðslu.

Kynntar verða mismunandi aðferðir af útsaumi og farið verður í ferðalag í hugmyndavinnu í gegnum slökunarferli. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á skapandi nálgun og tilraunir í útsaumi.

Thelma Björk Jónsdóttir, jóga- og hugleiðslukennari sér um námskeiðið. Skráning í mótttöku Ljóssins, mottaka@ljosid.is eða í síma 561-3770.

 

Þakklæti og sjálfið þriðjudagana 10. og 17. nóvember kl. 12:30-15:30
Á námskeiðinu förum við inn á við og vinnum með sjálfsmynd og þakklæti á skapandi hátt. Við búum til smábók sem geymir þau verkefni og æfingar sem verður farið í.

Berglind Gunnarsdóttir sér um smiðjuna. Skráning í mótttöku Ljóssins, mottaka@ljosid.is eða í síma 561-3770.

 

Pappamassi – eitt námskeið.
Mánudagur 30. nóv kl. 9:00-12:00
Þriðjudagur 1. des kl. 9:00-12:00
Miðvikudagur 2. des kl. 12:30-15:30
Mánudagur 7. des kl. 9:00-12:00
Þriðjudagur 8. des kl. 9:00-12:00

Sara Vilbergs myndlistarkona verður með skapandi pappamassanámskeið 27. og 28. maí og 3. og 4. júní (þriðjudagar og miðvikudagar) kl. 12:30 – 15:30. Á námskeiðinu kennir Sara töfrana á bakvið pappamassa, hvernig hann er notaður til þess að móta og búa til hinar ýmsu verur og hluti.

Sara Vilberg myndlistakona sér um námskeiðið. Skráning í mótttöku Ljóssins, mottaka@ljosid.is eða í síma 561-3770. Efnisgjald námskeiðsins er 1500 kr.

Helstu upplýsingar

Utanumhald og skráning: Berglind Gunnarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur

Efnisgjaldi er haldið í lágmarki

Skráningar og upplýsingar í móttöku Ljóssins og í síma 561–3770.