Í sumar verða fjölbreyttar handverkssmiðjur. Hægt verður að skrá sig með tveggja vikna fyrirvara beint í allar smiðjurnar. Ekki er þörf á skráningu í prjónahópinn á miðvikudagsmorgnum en mikilvægt er að skrá sig í allar aðrar smiðjur. Ekkert hámark er á fjölda smiðja sem má sækja (fyrir utan leirlistarsmiðjurnar).

Leirlistarsmiðjur sumarsins verða tvisvar í viku og Ljósberar geta skráð sig í eina smiðju í viku. Við leggjum til að Ljósberar komi í að minnsta kosti í tvær leirlistarsmiðjur. Leiraðir eru munir í fyrri tímanum og í þeim síðari eru munirnir glerjaðir.

Á heimasíðu Ljóssins má sjá sumardagskrána í handverkinu og nánari upplýsingar um hverja smiðju. Hægt verður að nálgast útprentaða sumardagskrá í móttökunni. Skráning fer fram í móttöku Ljóssins og í síma 561–3770. Einnig er hægt að senda tölvupóst á berglindgunnars@ljosid.is til þess að fá frekari upplýsingar eða koma vangaveltum á framfæri.

Helstu upplýsingar

Sumar

Utanumhald og skráning: Berglind Gunnarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur.

Skráningar og upplýsingar í móttöku Ljóssins og í síma 561–3770.