Við kennum ykkur grunninn í leir, notum gifsmót og notum plötuaðferð. Við kennum ekki að renna leir, allt er handmótað með aðstoð gifsmóta og fleiri verkfæra. Kennum ykkur svo á glerunga og oxið, til að gefa hlutunum lokaútkomuna. Allt efni er á staðnum og gott úrval af glerungum.

Svo leikum við okkur að gera flotta hluti, t.d stjaka, skálar, diska og margt fleira. Við reynum eftir bestu getu að aðstoða við ykkar hugmyndir.

Leirinn er mjög róandi og heilandi handverk, það er algjörlega hægt að gleyma stað og stund að vinna með leir.

Byrjendur og lengra komnir velkomnir.

Helstu upplýsingar

Síðasti vikan í leir fyrir sumarfrí er 17.júní til 21. júní. 
Hægt er að sjá á stundaskrá hvenar síðasti tími hvers hóp verður
Hefst aftur í september 2024

Hvenær:

Mánudaga 9:00 – 12:00 og 12:30 – 15:30

Þriðjudaga 9.00 – 12.00 og 12.30 – 15.30

Miðvikudaga  9:00 – 12:00

Fimmtudaga 9:00 – 12:00

Föstudaga 09:00 – 12:00

Yfirumsjón: Erla Sigurðardóttir

Leiðbeinendur: Jóna, Bogga og Fríða

 12.vikur

Aðeins er greitt fyrir efni

Skráning og upplýsingar í síma 561-3770

Skráning er nauðsynleg