Á fatasaumsnámskeiði Ljóssins mætumst við á miðrið leið með frábærum leiðbeinendum.
Kenndar verða grunnaðferðir við að taka upp snið, sníða og sauma einfaldar flíkur eða annað sem fólk óskar eftir. Á staðnum eru tímarit með sniðum en þátttakendur eru einnig hvattir til að mæta með sín eigin ef þar er að finna áhugaverð snið.
Helstu upplýsingar
Hvenær: Mánudaga frá kl. 9:00 – 12:00
Fimmtudaga 9:00 – 12:00
Leiðbeinandi: Katla Sigurðardóttir, kjólameistari
Ath. takmarkaður fjöldi og því er nauðsynlegt að skrá sig.
Skráning í síma 561-3770