Kæru vinir,
Á morgun fimmtudaginn 26. mars er gert ráð fyrir appelsínugulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð.
Lokað verður í Ljósinu og við hvetjum alla Ljósbera til að huga vel að veðurspám áður en haldið er út í daginn.
Við biðjum ykkur öll um að fara varlega og ef þið eigið bókaðan tíma hjá okkur í Ljósinu og eruð ekki að treysta ykkur úr húsi þá má alltaf senda okkur póst á mottaka@ljosid.is eða hafa samband í síma 561-3770.
Ef það verða einhverjar breytingar á verðurspám, þá setjum við inn frekari upplýsingar.
Kærleikskveðja,
Starfsfólk Ljóssins
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






