Ljósið tók í dag við rúmlega 32 milljónum sem söfnuðust á Takk degi Fossa fjárfestingabanka.
Framlag Fossa skiptir gríðarlega miklu máli fyrir starfsemi Ljóssins og óhætt að segja að Takk dagurinn standi undir nafni því þakklætið fyrir söfnun sem þessa er mikið.
Fossar fjárfestingarbanki héldu Takk daginn í ellefta sinn 27. nóvember þegar safnað var í þágu Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess.
Á Takk deginum renna þóknunartekjur af verðbréfaviðskiptum í kauphöll auk beinnaframlaga viðskiptavina og velunnara Fossa óskipt til söfnunarinnar. Líkt og síðustu ár voru viðtökur góðar og þátttaka í Takk deginum mikil. 32,1 milljónir króna söfnuðust og voru afhentar fulltrúum Ljóssins 2. desember.
Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Ljóssins, segir söfnunina gera endurhæfingarmiðstöðinni kleift að innrétta nýtt stuðningssetur í nýju húsnæði, sem er hjartað í allri starfseminni og fyrsta stopp flestra sem leita til Ljóssins. Mikilvægt sé að nýtt húsnæði taki vel utan um fólk og framlagið frá Fossum og viðskiptavinum þeirra skipti miklu máli svo það takist.

Starfsfólk Fossa ásamt Ernu Magnúsdóttur, framkvæmdarstýru Ljóssins og Svanhildi Sigurðardóttur, sem situr í stjórn hjá Ljósinu.
Framlag sem skiptir máli
Þetta skiptir máli vegna þess að þörfin fyrir starfsemina heldur bara áfram að vaxa. Krabbameinsgreiningum hefur fjölgað gífurlega og spár gera enn ráð fyrir mikilli fjölgun næstu ár. Ljósið er eina endurhæfingarstöðin fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þess og í núverandi húsnæði höfum við átt erfitt með að anna öllum þeim fjölda sem til okkar leitar. Því er mikilvægt að færa starfsemina í stærra
húsnæði sem fyrst,“ segir Erna.
Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa, segir Takk daginn hafa fest sig í sessi og afskaplega ánægjulegt hvernig færst hafi í vöxt að fólk leggi söfnuninni lið með beinum framlögum. „Það er víða hægt að hlaupa undir bagga og okkur finnst hafa tekist afskaplega vel til í ár að velja þessa mikilvægu starfsemi sem gagnast svo mörgum,“ segir hann. Starfsfólk Fossa hafi fundið það á Takk deginum að Ljósið snerti líf margra og allir séu meðvitaðir um mikilvægt starf sem þar er unnið.

Erna Magnúsdóttir framkvæmdarstýra Ljóssins, Steingrímur Arnar Finnsson forstjóri Fossa, Svanhildur Sigurðardóttir stjórnarkona hjá Ljósinu
20 ár frá stofnun Ljóssins
Í ár eru 20 ár frá stofnun Ljóssins og mikið vatn sem runnið hefur til sjávar á frá þeim tíma. Í árdaga starfseminnar var fengin lánuð aðstaða kjallara Neskirkju til starfseminnar og sóttu þá um 20 til 30 manns daglega þjónustu til að byggja sig upp eftir erfið krabbameinsveikindi.
Á síðasta ári sóttu nærri sautján hundruð manns þjónustu til Ljóssins og komur í einstaka þjónustuþætti voru yfir 32 þúsund talsins. Núverandi húsnæði Ljóssins er um 850 fermetrar en til að sinna öllum þeim fjölda sem þangað leita þyrfti húsnæðið að vera í það minnsta 1.300 fermetrar að stærð.
Styrkurinn mun sannarlega koma að góðum notum í húsnæðissjóð Ljóssins þar sem við leitum nú að stærra húsnæði undir endurhæfingarstarfið. Takk fyrir að styðja við Ljósið og hjálpa okkur að láta það skína enn skærar.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.






