Bandvefslosun er sjálfsnudd með boltum og mjúkum hreyfiteygjum ásamt slökun í lokin.
Endurnærandi hóptími þar sem lögð er áhersla á að róa taugakerfið , slaka á spenntum vöðvum, auka blóðflæði og mýkja bandvefinn.
Bandvefur er stoðvefur sem umlykur og tengir saman mismunandi vefi og er milliliður í flutningi næringarefna og taugaboða. Ef rennsli milli bandvefslaga minnkar missir hann seigu teygju eiginleika sína sem getur haft áhrif á hreyfigetu.
Ýmiskonar verkir og skert hreyfigeta geta verið einkenni frá stífum bandvef. Til dæmis getur stífni í herðablaði leitt upp í höfuð og stífni í mjöðm og læri getur haft mikil áhrif á bakið.
Bandvefslosun getur meðal annars hjálpað til við að:
- Draga úr verkjum og streitu
- Bæta líkamsstöðu
- Auka hreyfifærni og vellíðan
Takmarkað pláss er á námskeiðið og bendum við áhugasömum um að ræða við þjálfara Ljóssins fyrir nánari upplýsingar.
Næsta námskeið
Hefst 3. október
Fimmtudagar kl. 12:00 – 12:45 í 5 skipti
Umsjón: Erla Ólafs, sjúkraþjálfari
Skráning fer fram hjá þjálfurum Ljóssins.