Kveikjum Ljósið í júlí

Kveikjum Ljósið í júlí!

Varningur til styrktar Ljósinu verður til sölu í Nettó um allt land í júlí.

„Ljósið er hæst á lofti í júlí. Þá eru allir á ferðinni og vantar sundpoka og spil fyrir útileguna,“ segir Helga Dís Jakobsdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri Nettó.

Júlí er mánuður Ljóssins í Nettó. Þá er hægt að kaupa varning merktan Ljósið x Nettó og allur ágóðinn rennur óskiptur til endurhæfingar fólks sem hefur greinst með krabbamein. „Í fyrra gekk verkefnið vonum framar. Við söfnuðum 5 milljónum fyrir Ljósið og það var gaman að sjá að pokarnir urðu „trend“. Við erum mjög spennt fyrir því í ár.“

 

 

Litríkt og hlýtt

Í ár fékk markaðsteymi Nettó og Ljóssins Unni Stellu Níelsdóttur, myndlistarkonu og eiganda Start Studio, að borðinu til að hanna listaverk fyrir átakið. „Helga Dís heyrði í mér og spurði hvort ég vildi vera partur af þessu samstarfi og mér fannst það auðvitað bara frábær hugmynd,“ segir Unnur Stella. „Hún sagðist hafa talað við teymið hjá Ljósinu og sýnt þeim myndirnar sem ég var að gera og þær voru hrifnar af því hvað þetta var litríkt. Þegar ég kom í Ljósið skildi ég það af því að það er eins og ljós að koma þarna inn, allt svo litríkt og hlýtt.“ Verkið hennar er af kaffihlaðborði og heitir „Skína“.

 

 

Krabbamein kemur öllum við

„Ljósið veitir endurhæfingu fyrir alla þá sem greinast með krabbamein, 16 ára og eldri. Við veitum líka þjónustu við aðstandendur og það hefur Ljósið alltaf gert því krabbamein kemur öllum við og hefur mikil áhrif,“ segir Þórhildur Sveinsdóttir, einn af iðjuþjálfum Ljóssins. Ljósið byggir á hugmyndafræði iðjuþjálfunar og áhersla er lögð á heildræna nálgun. „Þegar fólk kemur í Ljósið veit það að það er að fara í líkamlega endurhæfingu, það veit að það fær heilmikla fræðslu um hreyfingu, næringu, um sjálfmyndina og álagið, en það kannski veit ekki hvað þessi jafningjastuðningur er mikils virði.“

 

Keramik er núvitund

„Handverkið er eins og núvitund hjá okkur. Þar gerast ótrúlegir galdrar, til dæmis í leirverksmiðjunni okkar – ég segi verksmiðjunni af því að það er framleitt svo mikið þar. Fólk dundar sér og spjallar og getur á léttum nótum, en líka alvarlega, talað um hvernig því líður, deilt með hvert öðru og hér myndast oft dásamleg vinabönd. Ég hef hitt fólk sem hefur tengst í Ljósinu og litla hópa sem hafa haldið saman árum saman,“ segir Þórhildur.

Keramikgerð er sérstaklega vinsæl í Ljósinu og þar hafa ótrúleg listaverk orðið til. Unnur Stella gerir einnig keramikverk og hafði hrifist af bollum sem urðu til í „leirverksmiðju“ Ljóssins. „Örfáum vikum áður en Helga Dís hafði samband hafði ég farið í heimsókn til vinar míns. Ég fór inn í eldhús og sá rosalega fallega bolla og þá sagði hann mér að mamma hans hefði gert þá þegar hún var í Ljósinu.“

 

Þjónusta fyrir alla, endurgjaldslaust

Viðtöl við fagaðila kosta þau sem leita til Ljóssins ekki neitt og önnur þjónusta er niðurgreidd. Fólk sem greinist með krabbamein utan höfuðborgarsvæðisins getur nýtt sér fjarfundarbúnað.

Þórhildur Sverrisdóttir, iðjuþjálfi í Ljósinu

„Þar fær fólk að tala við iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara; þá fagaðila sem þörf er á. Við notum Kara Connect sem er viðurkennt af landlækni sem viðtalsform yfir netið,“ útskýrir Þórhildur. „Svo hjálpum við fólki að tengjast því sem er í boði í þeirra heimabyggð.“ Fólk alltaf velkomið í Ljósið ef það á erindi til Reykjavíkur, bætir hún við.

 

 

 

Heimilisleg stemmning

„Það eru einhverjir töfrar hér í Ljósinu. Það eru allir jafnir, það skiptir ekki máli hvaðan þú kemur. Þetta snýst hvorki um stétt né stöðu heldur skilur fólk egóið sitt eftir þegar það labbar hérna inn,“ segir Heiða Eiríksdóttir sem sinnir markaðs- og kynningarmálum fyrir Ljósið. Henni finnst Unni Stellu hafa tekist vel til við að fanga þessa stemmningu. „Hún kom hérna í heimsókn og við kynntum starfsemina fyrir henni og hún gerði þetta ótrúlega fallega verk sem er alveg „spot on“ og lýsir svo mikið þessari heimilislegu, fallegu stemmningu sem er hér innanhúss.“

 

Dýrmætt samstarf

Heiða Eiríksdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi í Ljósinu

Ljósið er að hluta til á fjárlögum frá ríkinu fyrir hluta af launum starfsfólks, útskýrir Heiða. „Að öðru leyti treystum við á góðvild einstaklinga, fyrirtækja og alls konar félaga sem koma og styrkja starfið með alls kyns hætti. Þess vegna er verkefni eins og þetta svo ótrúlega mikilvægt og dýrmætt. Þetta fer allt beint til fólksins sem virkilega þarf á því að halda.“

Heiða segir tilvalið að bjóða upp á vörur átaksins í verslunum Nettó. „Þær er á öllu landinu og tengist svo fallega við landsbyggðadeildina hjá okkar í Ljósinu. Við stefnum á að láta sjá okkur í einhverjum af verslununum úti á landsbyggðinni í júlí og heilsa upp á fólkið okkar. Vonandi sjáumst við þar!“

 

 

Nettó x Ljósið hefst 1. júlí og varir út júlímánuð. Auk sundtöskunnar og spilsins jenga, sem verk Unnar Stellu prýðir, rennur hluti af ágóða sölu Coop salernispappírs og Folkington’s safa í glerflöskum til Ljóssins í júlí. Vörurnar fást í Nettó um allt land og á netto.is.

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.