Fræðsla á Zoom

Zoom fræðslan er fyrst og fremst ætlað fólki á landsbyggðinni og þeim sem hafa ekki tök á að sækja fræðslu í húsnæði Ljóssins að Langholtsvegi.

Markmið

Að fólk í svipuðum sporum fái fræðslu, taki þátt í umræðum og fái þannig stuðning til að takast á við breytingar í kjölfar greiningar. Umsjón með námskeiðinu hafa iðjuþjálfar í Ljósinu, en auk þeirra halda fagaðilar fyrirlestra um sín sérsvið og stýra umræðum.

Á námskeiðinu verður fjallað um aðstæður og úrlausnir þegar það verða breytingar á lífinu, hvernig greining og meðferð geta haft áhrif á líða, hvernig hægt sé að efla eigin heilsu og mikilvægi þess að viðhalda og byggja upp orku og þrek, samskipti, nánd og kynhegðun og auðvitað hvernig við sköpum áhugaverða framtíðarsýn.

Þessi námskeið hafa skapað mikla samkennd og veitt þátttakendum mikinn jafningjastuðning í gegnum árin.

Dagskrá

4. sept – Erla Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari – Líkamleg uppbygging
11. sept– Berglind Ásgeirsdóttir og Louisa Sif Mønster, iðþjuþjálfar – Daglegar venjur
18. sept –Alda Pálsdóttir, iðjuþjálfi – Taugakerfið
25. sept – Eyþór Eðvarsson, stjórnendaþjálfari og ráðgjafi – Að virkja kraftinn í streitunni

 6. nóv – Elín Kristín Klar, sálfræðiráðgjafi – Sjálfsmyndin
13. nóv – Rannveig Björnsdóttir, næringarfræðingur – Góð næring, bætt lífsgæði
20. nóv – Indíana Rós, kynfræðingur – Krabbamein og kynlíf
27. nóv – Ingibjörg Ferdínands, markþjálfi – Jafnvægi, hugrekki og framtíðarsýn

NÆSTU NÁMSKEIÐ

4. september

miðvikudagar kl. 14:00 – 15:30

Umsjón: Louisa Sif og Berglind, iðjuþjálfar

_______

6. nóvember

miðvikudagar kl. 14:00 – 15:30

Umsjón: Louisa Sif og Berglind, iðjuþjálfar

Skráning á námskeið í september
Skráning á námskeið í nóvember

Vilt þú kynnast samskiptaforritinu Zoom áður en fræðslan hefst?

Smelltu hér til að skrá þig á örnámskeið