Teygjuæfingar eru virkilega góðar fyrir okkur og hafa marga bætandi eiginleika eins og að auka liðleika, losa um stirðleika og auka hreyfigetu. Þannig getum við aukið vellíðan í okkar daglega amstri með því að teygja reglulega.
Mjúkir tímar þar sem aðal áherslan er á margskonar teygjur. Í tímanum er gerðar teygjur fyrir alla helstu vöðvahópa líkamans, og eru æfingarnar aðlagaðar að getu hvers þáttakanda.
HELSTU UPPLÝSINGAR
Athugið – Þessi dagskrárliður fer í sumarfrí í júlí og ágúst.
Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar
kl. 12:30 – 12:50
Í Ljósinu, Langholtsvegi 43
Umsjón: Þjálfarar Ljóssins