Sérhæfðir og sérhannaðir tímar fyrir þau sem hafa farið í skurð vegna brjóstakrabbameins. Í tímunum fræða þjálfarar Ljóssins og kenna hvernig mögulegt er að hámarka hreyfigetu, styrk og vellíðan í kjölfar skurðaðgerða á brjóstum.
Gott er að byrja að sækja þessa tíma um 3 vikum eftir skurð (skurður að fullu gróinn) og æfingarnar til þess fallnar að brúa bil í 2-6 vikur eftir aðgerð eða þar til þjàlfarar (sjúkraþjálfari/íþróttafræðingur) telja að tími sé kominn til að fara í styrkjandi æfingar í æfingasal.
Helstu upplýsingar
þriðjudagar og fimmtudagar kl:14.00-14.45
Staðsetningar: Æfingahúsnæði Ljóssins
Umsjón hafa þjálfarar Ljóssins.