Spjall og styrking – Fræðsla fyrir nýgreinda

Opnir tímar fyrir allt fólk sem nýlega hefur greinst með krabbamein. Þátttakendur sem eru í svipuðum sporum fá fræðslu frá fagaðilum með fjölbreytta reynslu. Tækifæri gefst fyrir umræður og þannig stuðning til að takast á við breytt lífsskilyrði í kjölfar veikinda.

Markmið:

Að nýgreindir fái fræðslu, umræður og vandaða fyrirlestra ásamt stuðning til að takast á við breytt lífsskilyrði í kjölfar veikinda og létt geta undir í uppbyggingarferlinu.  Þeir fagaðilar sem flytja erindi hafa allir unnið með krabbameinsgreindum og hafa víðtæka reynslu og skilning á aðstæðum þátttakenda. Umsjón með fræðslunni er í höndum iðjuþjálfa, en aðrir sérfræðingar flytja einnig erindi.

Ert þú ný/r í Ljósinu? Spjall og styrking er vettvangur til að hitta aðra í sambærilegum aðstæðum og fá stutta fræðslu um margvísleg málefni og umræður um bjargráð.

 

Dagskrá sumarsins 2023

13. júní Louisa, iðjuþjálfi

Daglegar venjur og sumartíminn 

Hvaða venjur virka fyrir þig? Hver er forgangsröðunin þín í daglegu lífi og ertu að taka mið af stöðunni eins og hún er í dag? Í fyrsta tíma Spjall og styrkingar leiðir Louisa Sif iðjuþjálfi umræðuna um venjur, vana og jafnvægi í daglegu lífi. Einnig hvernig sumartíminn getur verið tími tilhlökkunar en breyttar aðstæður geta verið áskorun.   

 

20. júní Áslaug Helga, yfirsjúkraþjálfari Ljóssins

Hreyfing  

Regluleg hreyfing er mikilvæg meðan á krabbameinsmeðferð stendur til að draga úr aukaverkunum og bæta líkamlega og andlega líðan. Þjálfarar Ljóssins fara yfir mikilvægi hreyfingar og veita góð ráð um hvernig hægt er að halda sér virkum í gegnum allt ferlið.

 

27. júní Kristín Hulda, sálfræðingur

Krabbameinstengdar áhyggjur og kvíði

Hvað erum við að tala um þegar við tölum um nærumhverfi okkar? Liggja tækfæri almennt í okkar nærumhverfi? Tökum samtalið saman og rannsökum hvað felst í því hugtaki. Markmiðið er að auka meðvitund okkar um tækifærin og jafnvel hindranirnar sem liggja þar. 

 

4. júlí Alda Pálsdóttir, iðjuþjálfi og jógakennari

Slökun

Slökun er ekki bara fyrir ketti heldur líka okkur mennina. Þegar við slökum meðvitað á eykst orka og það dregur úr líkamlegum einkennum sem tengjast streitu. Alda Pálsdóttir fræðir um slökun, af hverju hún er mikilvæg og hvernig hún nýtist og leiðir að lokum þátttakendur í gegnum slökun. 

 

11. júlí Helga Jóna, iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðarfræðingur

Fjölskyldan og samskipti

Krabbameinsgreining hefur áhrif á alla fjölskylduna. Helga Jóna iðjuþjálfi og fjölskyldumeðferðarfræðingur ræðir áhrif þess og breytingar í fjölskyldunni í kjölfar greiningar. Farið yfir hjálplega þætti í aðlögunarferlinu og samskipti innan fjölskyldunnar. 

 

20. júlí Slökun – Alda Pálsdóttir, iðjuþjálfi og jógakennari

Slökun  

Slökun er ekki bara fyrir ketti heldur líka okkur mennina. Þegar við slökum meðvitað á eykst orka og það dregur úr líkamlegum einkennum sem tengjast streitu. Alda Pálsdóttir, iðjuþjálfi og jógakennari, með meiru, segir frá hinum margvíslegum aðferðum slökunar, hvernig hún nýtist og leiðir að lokum þátttakendur í gegnum slökun. 

 

18. júlí Þórhildur iðjuþjálfi

Sjálfsmildi og samkennd

Þegar við göngum í gegnum sársauka og þjáningu er mikilvægt að geta sýnt sjálfum sér samkennd. Í þessum tíma verður farið yfir hvernig við getum ræktað með okkur hugarfar góðvildar og samkenndar. Við ræðum um leiðir til að hlúa að okkur. Að lokum verður verkfærið samkenndarhlé  kynnt sem hægt er að grípa til hvar og hvenær sem er í daglegu lífi.  

 

25. júlí Guðrún iðjuþjálfi 

Streita og bjargráð

Streita verður þegar áreitið er ekki í samræmi við getu einstaklingsins til að ráða við það. Þessi áreiti geta verið meðvituð eða ómeðvituð og streituvaldarnir hvort sem er ytri atburðir eða innri þættir einstaklinga. Að takast á við streitu er orkukrefjandi og orka er ósjaldan af skornum skammti því er ein algengasta, en jafnframt ómeðhöndlaðasta, aukaverkun krabbameinsmeðferðar. Guðrún Friðriks iðjuþjálfi fer hvernig hægt er að temja sér orkusparandi aðferðir, aðlaga hugsun að léttara lífi og finna bjargráð við streitu. 

 

1. ágúst Kristín Hulda sálfræðingur 

Jákvæð sálfræði

Fræðsla og kynning á verkfærum úr jákvæðri sálfræði sem nýtast mörgum til að takast á við greiningu/meðferð. Í jákvæðri sálfræði er áhersla lögð á að rækta þá hluti sem við gerum vel og láta okkur líða vel, frekar en bregðast eingöngu við vandamálum líkt og í hefðbundinni sálfræði. Fjallað verður sérstaklega um styrkleika, lífsgildi og þrautseigju. Þá verða gagnlegar aðferðir og verkfæri úr hugrænni atferlismeðferð einnig kynnt. 

 

8. ágúst Rannveig Björnsdóttir, næringarráðgjafi

Góð næring – bætt lífsgæði

Rætt verður um næringu og næringarvanda. Hvernig hægt er nýta næringu til að bæta góða vana og lífsgæði  

 

15. ágúst Matti Ósvald, markþjálfi og heildrænn heilsufræðingur

Markmiðasetning  

Það er draumur að komast á tunglið, en að smíða geimskutlu til að komast þangað er markmið. Veist þú hvert þig langar til að fara? Hvað þig langar til að gera? Ef þú veist ekki hvert þú stefnir á morgun, í næstu viku eða í næsta mánuði skiptir engu máli hvað þú gerir í dag. Skoðaðu markmiðasetningu með Matta markþjálfa í þessum síðasta tíma Spjalls og styrkingar sumarsins 

 

 

Næsta námskeið

Spjall og styrking
Hefst 13. júní

Fimmtudagar frá 10:30 – 12:00
Umsjón fræðslunnar er í höndum fagaðila í Ljósinu

Fræðslan er þátttakendum að kostnaðarlausu
Frekari upplýsingar í síma 561-3770