Sigrún Marinósdóttir hárgreiðslumeistari í Ljósinu aðstoðar við val á hárkollum, mátun og snyrtingu einn dag í viku. Jafnframt mun hún kenna að binda slæður á flottan hátt og eins aðstoða við hárrakstur eftir lyfjameðferð fyrir þá sem það kjósa.
Þjónustan er Ljósberum að kostnaðarlausu en jafnframt vekjum við athygli á að í Ljósinu er hægt að fá hárkollur og höfuðföt gegn vægu gjaldi.
Hér eru góðar leiðbeiningar hvernig hægt er að binda slæður
Það getur verið mikið áfall að missa hárið og margar konur geta ekki notað hárkollur, þá er gott að geta komið Ljósið og fengið leiðsögn með smart slæðuhnýtingar í notalegu umhverfi.
Slæðuhnýtinganámskeið eru auglýst sérstaklega.
Ljósberar eru margir hverjir duglegir að leita að öðruvísi lausnum og við hvetjum þá eindregið til að deila hugmyndum sínum með öðrum Ljósberum. Hér má til að mynda finna síður þar sem keypar voru spangir með topp til þess að nota undir húfur og fallegir klútar.
Nánari upplýsingar í síma 561-3770
Helstu upplýsingar
Fyrir hverja: Krabbameinsgreinda
Hvenær: Á mánudögum frá kl. 10:00-12:00
Hvar: Ljósinu, Langholtsvegi 43
Hárgreiðslumeistari: Sigrún Marinósdóttir