Aðalmarkmiðin með námskeiðinu eru að þátttakendur auki, jafnvægi sitt í daglegu lífi, starfsfærni, vellíðan og von. Á námskeiðinu gefst tækifæri til þess að hitta aðra í sömu sporum, fá fræðslu og stuðning við að þekkja eigin tilfinningar, hugsanir, efla sjálfsmyndina, draga úr þreytu, auka jafnvægi í daglegri iðju, styrkja tilgang og von, huga að næringu og kynnast slökun og árvekni.
Umsjón: Anna Sigríður Jónsdóttir BSc iðjuþjálfi og Rannveig Björk Gylfadóttir hjúkrunarfræðingur (MSc í krabbameinshjúkrun og diplóma í hugrænni atferlisfræði). Rannveig Björnsdóttir næringarfræðingur, MSc verður með fræðslu um næringu í einum tímanum.
Námskeiðið byggir meðal annars á hugrænni atferlismeðferð (HAM). HAM-meðferð hefur verið notuð við margskonar andlegri vanlíðan; þunglyndi, kvíða, reiði, slöku sjálfstrausti, veikindum, ástvinamissi og fleiru. HAM felst í margskonar hugrænni og atferlislegri tækni sem hjálpar fólki meðal annars að breyta neikvæðum óhjálplegum hugsunum.
Námskeiðið er á þriðjudögum í 10 skipti í 2 tíma í senn, kl. 13-15. Námskeiðið byggir á fræðslu, stuttum verkefnum, umræðum og slökunar/núvitundar æfingum. Námskeiðið kostar 3000 kr
Tímum námskeiðsins er skipt niður í eftirfarandi efnisþætti:
- Kynning. Viðbrögð og aðlögun vegna veikinda.
- Þreyta og jafnvægi í daglegri iðju
- Að þekkja eigin tilfinningar og hugsanir
- Holl næring og næringarvenjur
- Sjálfmynd og sjálfstyrkur
- Samskipti og félagslegur stuðningur
- Tilgangur, markmið og von
- Upprifjun og úrvinnsla
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.