Ljósinu var á dögunum færð peningagjöf frá Frístundaheimilinu Neðstalandi í Fossvogi.
Hressir krakkar á aldrinum 6-9 ára héldu foreldradag með hæfileikasýningu og veitingum. Fólki bauðst að setja frjáls framlög í sparibauk þar sem safnaðist álitleg upphæð. Börnin ákváðu að Ljósið myndi njóta góðs af. Frábært framtak hjá flottum krökkum og Ljósið þakkar þeim innilega fyrir gjöfina sem kemur sér vel í starfsemi Ljóssins.
![12281920_10153590983445189_1493687319_o.jpg 12281920_10153590983445189_1493687319_o.jpg](/wp-content/uploads/2015/12/myndir_12281920_10153590983445189_1493687319_o.jpg)
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.