" Innra Frelsi eða fjötrar"
Erindi: Elín Jakobsdóttir
Miðvikudaginn 26. nóv. kl. 14:00-15:15
Fjallað verður um meðvirkni og stjórnun, áhrif þess á okkur sjálf og áhrif þess í samskiptum við aðra. Með skilningi og viðhorfsbreytingu getum við losað okkur undan áhrifum þessa vana, orðið frjáls undan eigin fjötrum, okkur sjálfum og öðrum til mikillar blessunar.
"Heilunarmáttur hugleiðslu"
Erindi: Sigrún Olsen
Miðvikudaginn 3. des kl. 14:00-15:15
Í fyrirlestrinum verður sérstök áhersla lögð á að nýta heilandi mátt hugleiðslunnar til að græða gömul sár fortíðarinnar og hjálpa okkur að verða heil og frjáls á ný.
ATH! það þarf að skrá sig á fyrirlestrana – Skráning í síma 5613770
Fyrirlestrarnir eru ókeypis
Ljósið hefur í mörg ár verið í góðri samvinnu við hugleiðsluskólann Lótushús sem býður upp á fjölbreytt námskeið og fyrirlestra í hugleiðslu og
sjálfsstyrkingu fyrir alla sem vilja hlúa vel að sjálfum sér og auka sinn innri frið og styrk.
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.