Nýtt námskeið í Ljósinu
Aftur til vinnu
Námskeiðið er lokað námskeið fyrir fólk (að hámarki 10 manns í einu) sem er að fara aftur til vinnu eða í nám innan 6 mánaða.
Markmiðið er að fólk fái fræðslu og stuðning sem stuðlar að því að undirbúa sig til vinnu á ný eftir veikindaferli.
Hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, sjúkraþjálfari og ráðgjafi í næringu veita viðtöl og persónulega markmiðssetningu í gegnum námskeiðið.
Umsjón: Rannveig Björk Gylfadóttir og Unnur María Þorvarðadóttir
Skráning og upplýsingar í Ljósinu í síma 5613770
Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.