Aftur til vinnu eða náms

Ertu á leið til vinnu eða í nám eftir langt hlé í kjölfar krabbameins? Þá er gagnlegt að fá yfirlit yfir þá þætti sem gott er að huga að, hafa áhrif á vellíðan í starfi og styðja við færnina til að takast á við starf eða nám.

Á námskeiðinu „Aftur til vinnu eða náms“ eru þessir þættir skoðaðir frá ýmsum hliðum. Fræðsla frá fagfólki og reynslusögur í bland við umræður þátttakenda á námskeiðinu leggja góðan grunn að farsælli endurkomu í kjölfar endurhæfingar.

Námskeiðið er fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og er á leið til vinnu eða náms á ný eftir veikindi. Námskeiðið er liður í endurhæfingu Ljóssins og hentar þeim sem vilja vera betur í stakk búnir til að mæta aftur til vinnu, náms eða nýrra verkefna.

Námskeiðin eru haldin til skiptis í húsnæði Ljóssins og á Zoom. Næsta námskeið hefst 22. janúar 2026 og er í gegnum Zoom streymi. Næsta námskeið í húsnæði Ljóssins er áætlað í vor 2026.

Innihald

Fræðsla og umræður um þá þætti sem geta stuðlað að bættri heilsu og vellíðan tengt endurkomu til vinnu eða náms. Boðið er upp á einkaviðtal við náms- og starfsráðgjafa sem er einn þeirra fagaðila sem sér um fræðslu á námskeiðinu. Auk hennar eru iðjuþjálfar, sjúkraþjálfari og íþróttafræðingur með fræðslu. Í heimsókn koma tveir ljósberar sem lokið hafa endurhæfingu í Ljósinu og miðla sínum reynslusögum af því að snúa aftur til vinnu.

Markmið

  • Undirbúningur fyrir vinnu/nám í kjölfar þess líkamlega og andlega álags sem getur fylgt krabbameini og meðferð við því
  • Vinna áfram að bættri eigin heilsu og vellíðan; minnka líkur á heilsufarstengdum áhættuþáttum
  • Skoða eigin styrkleika, setja sér persónuleg markmið og áætlanir að þeim. Stuðla þannig að farsælli endurkomu til vinnu eða náms.

Umfjöllunarefni

  • Heilbrigði og leiðin aftur til vinnu eða náms í kjölfar krabbameins og meðferðar 
  • Hvert stefni ég? 
  • Endurkoma á vinnustað – reynslusögur – hvað segja rannsóknir? 
  • Aðlögun á vinnustað – vinnuumhverfi 
  • Hreyfing/líkamsþjálfun og áætlun til bættrar heilsu 
  • Jafnvægi í daglegri iðju 
  • Samantekt og framtíðarsýn 

Næsta námskeið

Hefst 22. janúar 2026 í streymi

Fimmtudagar kl. 14:00-16:00, í 5 skipti

Umsjón: Guðbjörg Dóra og Kolbrún Halla, iðjuþjálfar

Skráning á námskeið

Námskeiðið er hugsað fyrir þá sem eru komnir á seinnihlutann í sínu endurhæfingarferli og hentar því ekki þeim sem eru að hefja endurhæfingu. Ef þú ert í vafa, þá hvetjum við þig til að hafa samband við þinn fagaðila.