Ljósið, SKB og Kraftur bjóða upp á sameiginlega vetrardagskrá fyrir fólk á aldrinum 18-29 ára sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Ungt fólk með krabbamein getur komið saman og hist á jafningjagrunni.
Hópurinn hittist annan hvern fimmtudag ca kl. 19:00-22:00
VIðburðir gætu breyst en þá verður það auglýst með góðum fyrirvara
Nánari upplýsingar og skráning á viðburði eru á síðu Ungliðahópsins á Facebook – Ungliðahópur Ljóssins, Krafts og SKB
Umsjónarmaður hópsins er Kristján Th. Friðriksson
Frekari upplýsingar eru hjá Ljósinu í síma 561-3770.
Helstu upplýsingar
Fyrir hverja: Fólk, 18-29 ára, sem greinst hefur með krabbamein
Hvenær: Annar hver fimmtudagur kl 19:00-22:00
Umsjón: Kristján Th. Friðriksson