Skert stundatafla í apríl – Líkamlega endurhæfingin

Dagana 15.-17. apríl verður skerðing á stundatöflunni í líkamlegu endurhæfingunni, þar sem þjálfarar Ljóssins verða á Krabbameinsráðstefnu í Dublin.

Mikilvægt er að meðferðaraðilar fylgist með nýjustu þróun og fræðslu í faginu svo við getum haldið áfram að bjóða upp á bestu mögulegu endurhæfinguna og stuðninginn fyrir þjónustuþega Ljóssins.

 

Hefðbundin stundaskrá í líkamlegu endurhæfingunni fellur niður – en á meðan okkar bestu þjálfarar fylla hausinn af nýjum fróðleik höfum við fengið til okkar gott fólk til að halda uppi vinsælustu tímunum.

Hægt verður að bóka sig í eftirfarandi tíma í líkamlegu endurhæfingunni dagana 15. -17. apríl: 

Miðvikudagur 15. apríl

  • Tækjasalur kl. 9:00
  • Tækjasalur kl. 10:00
  • Tækjasalur kl. 11:00
  • Jóga kl. 10:00
  • Slökun kl. 11:00

Fimmtudagur 16. apríl

  • Tækjasalur kl. 9:00
  • Tækjasalur kl. 10:00
  • Tækjasalur kl. 11:00
  • Gönguþjálfun kl. 11:00
  • Stoðfimi kl. 13:00

Föstudagur 17. apríl

  • Tækjasalur kl. 9:00
  • Tækjasalur kl. 10:00
  • Tækjasalur kl. 11:00
  • Jóga kl. 10:00
  • Slökun kl. 11:00

 

Önnur dagskrá í Ljósinu helst óbreytt. 

Ekki er hægt að skilja eftir athugasemdir.